Computer Vision ehf.
Fyrirtækið hefur á árinu 2016 hannað og smíðað kerfi sem safnar gögnum frá myndavélum sem greina bílnúmer og gert gögnin aðgengilegri til hvers kyns greiningar ásamt því að gögnin eru notuð til að kenna hugbúnaði að greina efni í öðrum myndastraum. Félagið hefur þróað SmartAccess sem er innheimtu- og eftirlitskerfi og MyParking snjallforrit til greiðslu þjónustu- og bílastæðagjalda.
Smart Access er heilstætt eftirlits- og innheimtukerfi sem skráir komu og viðveru bifreiða og nýtir nýjar greiðslulausnir og sjálfvirkni í gjaldtöku og eykur þannig bæði flæði og skilvirkni svæða. Kerfið gefur sömuleiðis greinargóðar rauntímaupplýsingar um notkun og álag svæðisins ásamt upplýsingar um tekjur og stöðu innheimtu.
Smart Access – People er eftirlits- og aðgangsstýringarhluti kerfisins sem snýr að fólki og gefur það fyrirtækjum & stofnunum kost á að nýta myndgreingu til að stýra aðgengi að svæðum og tryggja öryggi svæða. Kerfið getur allt frá því að einfaldlega telja umgang til ítarlegrar greiningar og um leið stýrt aðgengi byggðu á skilgreindum heimildum.
Parka er snjallforrit og vefsíða (Parka.is) sem gefur ferðamönnum og almenningi möguleika á að greiða fyrir notkun bílastæða hjá Bílastæðasjóð Reykjavíkur og á ferðamannastöðum sem nýta sér Smart Access kerfi Computer Vision til eftirlits og innheimtu þjónustu- og bílastæðagjalda.
Ársæll Baldursson
Framkvæmdastjóri
Ægir Finnsson
Tæknistjóri
Guðjón Kári Jónsson
Hugbúnaðarsérfræðingur
Bjarni Þröstur Magnússon
Vélbúnaðarsérfræðingur